Fótbolti - ÍBV – Njarðvík í kvöld kl. 1800 á Helgafellsvelli

04.sep.2006  09:29

Sigur í þessum leik getur tryggt peyjunum sæti í umspili gegn Þór Akureyri og þaðan geta menn svo unnið sig upp um riðil. Markatala gæti ráðið úrslitum um það hvort að við náum í umspil en fyrst af öllu þurfa nú menn nú að girða sig í brók og vinna leikinn til þess að eiga séns á umspilinu, Við gerðumjafntefli 0-0 við Njarðvíkinga á þeirra heimavelli. Mætum að vellinum í kvöld og styðjum peyjana – Notum tækifærið og hitum upp raddböndin fyrir heimsókn Fimleikafélags Hafnarfjarðar í Landsbankadeildinni um helgina. Áfram ÍBV alltaf alls staðar

Heimasíðan hjá peyjunum er á slóðinni:

http://2fl.eyjar.is/